Hagar til "nýrra" eigenda

Nú hefur útrásarvíkingi númer eitt verið einum boðið að kaupa 60% í Högum. Öðrum er ekki hleypt að borðinu. Þetta er óskiljalegt. Eignarhaldsfélagið hans er gjaldþrota en honum einum er hleypt að borðinu. Skildi þetta vera raunin í tilfelli allra gjaldþrota fyrirtækja? Auðvitað ekki það sanna nýleg dæmi. Hvað er þá í gangi hér? Það er ekki útskýrt því miður. Auðvitað hefðu fleiri átt að fá að koma að borðinu. Hvaða vinnubrögð er hér í gangi?  Meðan þetta er ekki útskýrt er aðeins hægt að komast að einni niðurstöðu: Stjórn og bankastjóri Nýja Kaupþings eru ekki að gæta hagsmuna eigenda sinna og eru því með öllu óhæf. 

Það svíður

Skattahækkanirnar svíða en það var nú vitað að hruninu fylgdi reikningur sem allir landsmenn þyrftu að borga.  Það sem virkilega svíður er að enginn bankamaður og enginn útrásarvíkingur hefur verið dreginn til ábyrgðar enn.  Við búum í sjúku þjóðfélagi því miður.

Snillingar í samningatækni

Um að gera að láta Bretana vita að við teljum okkur vera að ná frábærri niðurstöðu í þessum samningum. Þetta fáum við út úr því að láta afdankaða pólitíkusa sjá um svona hluti. Hefðum betur sett besta bílasalann í bænum í þetta verkefni.
mbl.is Hagfelld niðurstaða í augsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athyglisverð greining hagfræðingsins Pedro Videlo

Hagfræðingurinn Pedro Videlo sem flutti erindi í gær á Viðskiptaþingi undir yfirskriftinni Kreppa 101, kemur með hnitmiðuðustu greiningu á stöðu íslenskra peningamála sem ég hef hingað til heyrt.  Okkur standa til boða tveir kostir:

1. Krónan áfram, hagkerfið lokað með gjaldeyrishöftum.

2. Upptaka Evru

Sjálfstæð fljótandi króna er ekki kostur að hans mati vegna þess að við höfum ekki nógu öflug tæki til að hafa stjórn á frjálsu fjármagnsflæði eins og nú er frægt orðið.

Þetta er málið í hnotskurn. Við þurfum að viðurkenna þessa stöðu og reyna að vinna úr henni einhvern veginn.

Vandamálið er auðvitað að báðir kostir eru vondir.  Kostur eitt er hræðilegur og mun leyða til einangrunar og fólksflótta.

Kosti 2 má líkja við fjallgöngu á Himalaja. Hann krefst gríðarlegs margra ára undirbúnings og miklar líkur eru á að maður verði úti á leiðinni. Þeir sem hafa kynnt sér Maastricht skilmálana fyrir inngöngu í myntkerfið sjá að við eigum gríðarlega erfiða vinnu fyrir höndum til að uppfylla þau, sérstaklega ef við þurfum að burðast með líkið af íslensku krónunni á ferðalaginu. Raunhæft mat tel ég vera 10 til 20 ár áður en við getum uppfyllt þau og þá með miklum fórnum.

Því freistast maður til að leiða hugann aftur að einhliða upptöku Evrunnar. Ég hef lesið rök þeirra sem eru á móti þeirri leið og er ekki sannfærður.

Þegar allt kemur til alls, er kannski skynsamlegast að taka Evruna upp einhliða og sækja svo um aðild að ESB þegar það hefur jafnað sig á þeirri ósvífni ? 


Fasteignir í USA á tombóluverði

Þessar upplýsingar og myndir sendi mér góður amerískur vinur minn. Þær eru frá úthverfi Atlanta borgar í Georgíufylki í Bandaríkjunum.  Eins og sjá má er hægt að fá mikið fyrir peninginn. $50þ. eða 5,7 Mkr.  Einbýlishús og stór lóð og þetta er ekkert "slum" ég hef verið þarna á svæðinu.  Kannski engin höll en samt ótrúlega mikið fyrir peninginn.  Í íslensku eignabólunni værum við að tala um tugi milljóna fyrir eitthvað svipað.  Bandaríski fasteignamarkaðurinn er auðvitað í tómu rugli núna, þar byrjaði eignabólan sem nú er sprungin framan í heiminn og nú virðist þetta vera algjör kaupendamarkaður.

Ég velti fyrir mér hvort eitthvað svipað geti gerst hér á landi, þ.e.a.s. algjört hrun eignaverðs. Það er gríðarlegt offramboð á nýjum íbúðum á landinu og spurning hvað eigendur þeirra hvort sem það eru einstaklingar, verktakar eða lánveitendur sem hafa leyst þær til sín geta hangið á þeim lengi áður en þær fara á brunaútsölu.

Meðfylgjandi er lýsing á eigninni í USA með myndum. 

$49,500 cash/hard money

Short Sale For Quick Sale!

3619 Burlingham Drive

Lithonia, GA  30038

DEKALB COUNTY

q       This is a siding and brick traditional home with a 2 car garage built in 1977.  The home is located in a very nice subdivision and sits on a huge lot close to an acre in size.

q       This home offers 4 bedrooms with 2 and 1/2 baths with formal living room, dining room and family room with brick fireplace!  All rooms are nice size! 

georgiahouse1georgiahouse2georgiahouse3


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband